Verkefnastjórar og nefndir
Á vegum Suðurnesjadeildar eru starfræktar átta fastar nefndir er starfa allt árið um kring. Skipaðir eru forráðamenn í viðkomandi nefndir en í sumum tilfellum eru fleiri kjörnir á aðalfundi hverju sinni.

Blóð- og fatasöfnunarnefnd: Hjörleifur Ingólfsson. Blóðsöfnunarnefnd er með elstu nefndum deildarinnar og annast blóðsöfnun hverju sinni og nú hefur nefndin einnig tekið að sér að hafa umsjón með fatasöfnuninni.

Fræðslunefnd: Gísli Viðar Harðarson.
Hlutverk fræðslunefndar er að sjá um námskeiðahald s.s. barnfóstrunámskeið, skyndihjálparnámskeið, neyðarvarnarnámskeið o.s.frv.

Húsnefnd: Örn Bergsteinsson.
Húsnefnd hefur umsjón með húsnæði deildarinnar að Smiðjuvöllum 8.

Kynningar- og útgáfunefnd: Emil Páll Jónsson.
Nefndin annast kynningar- og útgáfumál deildarinnar.

Neyðarnefnd: Karl Georg Magnússon.
Neyðarnefnd er ein mikilvægasta nefnd Suðurnesjadeildarinnar. Hlutverk hennar er að annast fræðslu um neyðarmál og mæta í öll útköll þar sem vá er fyrir dyrum.

Sjúkraflutninganefnd: Guðmundur R. J. Guðmundsson og Anna Pálína Árnadóttir.
Þessi nefnd hefur yfirumsjón með rekstri sjúkrabifreiðanna.

Unglingastarf: Jóna Hólm.
Unglingastarfið hefur verið mjög blómlegt. Á þeirra vegum er sér deild sem ber nafnið URKÍ-Suðurnes sem þýðir Ungliðahreyfing Rauða kross Íslands á Suðurnesjum. Sara Rut Gunnarsdóttir er formaður URKÍ-S.

Öldrunarnefnd: Arna Björk Hjörleifsdóttir og Elsa Kjartansdóttir. Hlutverk þessarar nefndar er að sinna félagsstarfi fyrir aldraða á félagssvæðinu.

Sjálfboðamiðstöð: Birna Zophaníasdóttir. Sjálfboðamiðstöð er sameiginlegt verkefni Suðurnesjadeildar RKÍ og Grindavíkurdeildar RKÍ og er starfrækt að Smiðjuvöllum 8 í Reykjanesbæ. Tilgangur sjálfboðamiðstöðvar er að styðja og efla sjálboðið starf innan deildanna, sjá um fræðslu fyrir nýja sjálfboðaliða og finna þeim starfsvettvang við hæfi. Jafnframt því að styðja sjálfboðaliða í störfum þeirra.

 


Karen Valdimarsdóttir við kennslu á barnfóstrunámskeiði í sumar.


Barnfóstrunámskeið á síðasta sumri, leiðbeinendur Elsa Pálsdóttir og Gísli Viðar Harðarson.


Frá aðalfundi deildarinnar fyrr á þessu ári.