[24.09.1999] Endurskynsmerki gefin
[06.09.1999] Unglingastarf
[14.08.1999] Bylgjulestin gegn ofbeldi
[21.07.1999] Föt sem framlag
[14.07.1999] Nýr sjúkrabíll
[18.06.1999] Barnfóstrunámskeið
[18.06.1999] Þýsk sjónvarpsgerð
[14.06.1999] Skyndihjálparnámskeið
[08.06.1999] Starfsmannafélögin keyptu
[05.05.1999] 540 fermetra húsnæði
[04.05.1999] Blóðsöfnun
[28.05.1998] Fatasöfnun
[28.05.1998] Heimsóknarþjónusta
[ --. --.1998] Best menntaðir

Endurskynsmerki gefin

Vikuna 20. - 24. september sl. fóru fulltrúar Suðurnesjadeildarinnar í heimsókn í alla grunnskólanna 7 á svæði deildarinnar. Gáfu þau öllum 6 ára börnum endurskynsmerki, en þau eru 259 í þessum 7 skólum á svæðinu, þ.e. öllum Suðurnesjum utan Grindavíkur.

Unglingastarf

Unglingastarf

Í sumar fóru leiðbeinendur á Hellu þar sem undirbúningur af vetrardagskránni fór fram. Vetrarstarfið hófst 6. september sl. og hefur verið sett upp dagskrá í hverri viku fram til 2. maí. Koma hóparnir sem eru tveir þ.e. 12-13 ára og 14-16 ára saman aðra hverja viku og einu sinni í mánuði er haldinn sameiginlegur fundur. Dagskráin á fundunum er mjög fjölbreytt og fræðandi fyrir ungliðana. Nú í október verður haldið Landsmót URKÍ á Akureyri og þangað fara ungliðar héðan.

Bylgjulestin gegn ofbeldi

Bylgjulestin gegn ofbeldi

Rauði krossinn og Bylgjulestin voru með samstarf í sumar. Kom fólk úr Rauða krossinum fram og kynnti verkenfi, auk þess sem dreift var bæklingi með staðreyndum um ofbeldi á Íslandi. Þá voru bæklingar með merki átaksins seldir. Meðan Bylgjulestin stansaði í Keflavík, sá Suðurnesjadeildin um þennan þátt.

Föt sem framlag

Í sumar gerðist það að Kristrún Pétursdóttir ýtti úr vör verkefninu "Föt sem framlag". Það gerði hún með því að fá hjá Rauða krossinum efnisafganga sem hún notaði síðan til sauma á ýmsum fatnaði heima hjá sér. Kom hún síðan færandi hendi með fatapakka upp í Sjálfboðamiðstöð. Verkefni þetta er einmitt gert með því hugarfari að fólk geti fengið snið til að vinna eftir og farið síðan með efnið heim og unnið eftir því sem tími gefst til. Kom fram í máli Kristrúnar að við lestur fréttablaðs Suðurnesjadeildarinnar sl. vetur hafi hugmyndin vaknað og um leið sá gamli draumur að starfa eitthvað fyrir Rauða krossinn og láta gott af sér leiða. Hefði þetta verkefni hentað mjög vel, en auk efnisbúta má fá garnafganga og prjóna litlar peysur.

Nýr sjúkrabíll

Nýr sjúkrabíll
Síðla sumars bættist nýr sjúkrabíll við flotann sem gerðir eru út frá slökkvistöð Brunavarna Suðurnesja. Leysir bifreiðin af hólmi þá elstu. Sú bifreið sem nú verður seld er af sömu gerð, árgerð 1991 og ekin rúmlega 210 þúsund km.
Nýja sjúkrabifreiðin er af gerðinni Ford Econoline árgerð 1999 með 7,3 lítra díselvél og drifi á öllum hjólum. Bifreiðin er innflutt um IB Innflutningsmiðlun á Selfossi, en drifbúnaði var breytt af Jeppasmiðjunni, Ljónsstöðum, Sandvíkurhreppi. Yfirbyggingin var byggð af Bílaskjóli á Hvolsvelli.
Bifeiðin er útbúin fullkomnum og öflugum sjúkrabúnaði til neyðarflutninga á slösuðu og sjúku fólki og má þar helst nefna fullkomið hjartastuðtæki, öndunarvél, lífsmarkamæli og fleira sem að notum getur komið við hinar erfiðu aðstæður sem upp geta komið.

Barnfóstrunámskeið

Mjög mikil aðsókn var í barnfóstrunámskeið sem haldin voru í upphafi sumars. Alls urðu námskeiðin tvö að tölu og voru haldin í maí og júní. Þáttakendur voru alls 36 börn.

Þýsk sjónvarpsgerð

Þýsk sjónvarpsgerð

Á öðru af barnfóstrunámskeiðunum sem fram fór í sumar, gerðist það að íslenskur kvikmyndagerðarmaður sem kvæntur er þýskri konu og starfa fyrir þýska sjónvarpið komu og fylgdust með kennslustund í skyndihjálp. Tóku þau upp kennslu heila kvöldstund til nota í sérverkefni sem þau voru með, sem er einskonar Kastljós, þ.e. þáttur sem ætlaður er börnum í Þýskalandi. Þemað var: Hvað gera íslensk börn í þetta löngu sumarfríi. Að námskeiðinu loknu fylgdu þau þremur stúlkum (sem höfðu verið á námskeiðinu) eftir við barnapössun.

Skyndihjálparnámskeið

Dagana 7. til 11. júní sl. var haldið skyndihjálparnámskeið í samvinnu við Símenntun á Suðurnesjum. Alls urðu þátttakendur 14 að tölu. Auk þess að hafa verið haldin námskeið fyrir sjúkrahússtarfsfólk, auk ýmsra starfsmannanámskeiða. Þá var einnig haldinn kynningarfundur í Grunnskólanum í Njarðvík um skyndihjálp.

Starfsmannafélögin keyptu

Starfsmannafélag Reykjanesbæjar og Starfsmannafélag Suðurnesjabyggða keyptu á vordögum húsnæði Suðurnesjadeildarinnar að Hafnargötu 15 í Keflavík.

540 fermetra húsnæði

540 fermetra húsnæði

Suðurnesjadeildin hefur keypt 540 fermetra nýbyggingu sem skilast fullbúin að utan. Viðbyggingin er við núverandi húsnæði að Smiðjuvöllum 8. Með þessum kaupum mun deildin geta haft alla sína starfsemi á einum stað og á jarðhæð.

Blóðsöfnun

Síðast þegar blóðsöfnun fór fram þ.e. á vordögum gekk hún mjög vel eins og endra nær. Eru það einkum vinnustaðir og ýmsir aðrir félagahópar sem fjölmenna til blóðgjafar þegar söfnunarsveitin frá Blóðbankanum kemur hingað suður. Þrátt fyrir hertar reglur gagnvart þeim er nú gefa blóð gáfu nálægt 100 manns blóð að þessu sinni, sem er mjög gott.

Fatasöfnun

Fatasöfnun
Mjög mikið magn af fötum berst að Smiðjuvöllum 8 og þar eru fötin flokkuð. Hluti af þeim fer í gám til Hollands til endursölu eða endurvinnslu og rennur ágóði af sölunni til hjálparsjóðs. Mikill hluti af barnafatnaði og hlýjum fatnaði fer til þróunaraðstoðar. Auk þess er tekið til hliðar besti fatnaðurinn og flokkaður í hillur þar sem skjólstæðingum Rauða krossins og þeim þjóðfélagsþegnum sem minna mega sín er boðið að þiggja að þörfum hvers og eins. Þannig hefur töluvert magn af fatnaði farið aftur til samborgara á svæðinu.

Heimsóknarþjónusta

Með tilkomu Sjálfboðamiðstöðvar hefur verið komið á fót heimsóknarþjónustu til aldraðra og einmana, þeirra sem einangrast hafa á heimilum sínum. Í heimsóknarþjónustunni starfa um 20 konur. Hefur verið mikill áhugi fyrir þjónustunni og geta þeir sem óska slíkrar þjónustu haft samband við Sjálfboðamiðstöðina að Smiðjuvöllum 8. Um er að ræða heimsóknir til þeirra sem vilja stytta sér stundir með spjalli við aðra.
Alltaf er þörf fyrir fleiri sjálfboðaliða. Þeir sem hafa áhuga hafi samband við Sjálfboðamiðstöðina að Smiðjuvöllum 8.

Best menntaðir

Í dag eru þrír sjúkrabílar í eigu Suðurnesjadeildar. Suðurnesjadeildin annast rekstur þeirra en Brunavarnir Suðurnesja mannahaldið. Allir eru bílarnir mjög vel tækjum búnir.
Þá eru sjúkraflutningsmennirnir sem á þeim starfa vel menntaðir. Hafa flestir þeirra lokið kröfumiklu námskeiði sem haldið var í samráði við Suðurnesjadeildina og er talið að Suðurnesin hafi nú upp á að bjóða best menntuðu sjúkraflutningsmenn landsins.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Föt sem framlag

 

 

 

Föt

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Fatasöfnun

 

 

Heimsóknarþjónusta
Félagar úr Suðurnesjadeildinni heimsóttu í sumar Dalbraut 10 á Akranesi, en þar er rekin Fjöliðjan, sen er vinnu- og hæfingarstaður, auk endurvinnslu og fatasöfnunar.