Höfuðstöðvar

Höfuðstöðvar

Suðurnesjadeild Rauða kross Íslands hefur selt húsnæðið að Hafnargötu 15 í Keflavík og flutt höfuðstöðvar sínar að Smiðjuvöllum 8, þar sem sjálfboðamiðstöðin hefur verið til húsa. Þar stendur til að innrétta í nýbyggingu fundarsal og annað það sem félagið þarf á að halda.

Starfsmaður á skrifstofu er sem fyrr Stefanía Hákonardóttir og er skrifstofan opin alla virka daga frá kl. 9 til 13. Síminn er 421-4747, einnig er GSM: 896-0433.

Í framtíðinni munu flest námskeið á vegum deildarinnar verða haldin að Smiðjuvöllum 8, svo og aðrir fundir.

Fjöldi félagsmanna er í dag 422 og er starfssvæðið öll Suðurnes utan Grindavíkur þ.e. Gerðahreppur, Reykjanesbær, Sandgerðisbær og Vatnsleysustrandarhreppur.

Opnun höfuðstöðva
Svæðisfulltrúar, starfsmenn RKÍ, ásamt formanni Grindavíkurdeildar og starfsmönnum deildanna í nýrri félagsmiðstöð að Smiðjuvöllu 8.

Að Smiðjuvöllum 8 er svæðisskrifstofan, skrifstofa deildarinnar, sjálfboðamiðstöð og fatamóttaka í samvinnu við Grindavíkurdeildina. Starfsmaður á svæðisskrifstofu er Birna Zophaníasdóttir.
Sjálfboðamiðstöðin styður við sjálfboðastarf hjá Suðurnesjadeildinni og Grindavíkurdeildinni og hennar hlutverk er að koma af stað nýju sjálfboðnu starfi. Svæðisskrifstofan fylgir eftir verkefnum sem skrifstofa Rauða kross Íslands vinnur að í samvinnu við deildir á Suðurnesjum.

Þarna er tekið á móti fötum, þau flokkuð og síðan dreift til þeirra sem minnst mega sín. Síminn þar er 421-5918 og netfangið á svæðisskrifstofu er: sudurnes@redcross.is